Hugbúnaðarlausn

Stjórnargátt fyrir stjórnir og nefndarstarf fyrirtækja, stofnanna og félagasamtaka. Áherslan er að veita miðlægt aðgengi að gögnum, fundum og starfsemi stjórnar ásamt því að tryggja rekjanleika og yfirsýn á virkni stjórnar.

Um lausnina
Helstu eiginleikar
Microsoft 365/SharePoint umhverfi
Gögn og skjöl fyrirtækisins eru í Microsoft 365/SharePoint umhverfi fyrirtækisins, þar sem starfsmenn vinna.
Yfirsýn og aðgengi stjórnarmeðlima
Aðgangur stjórnar- og nefndarmeðlima leggur áherslu á hvað er næst á dagskrá.
Innskráning með rafrænum skilríkjum
Stjórnar- og nefndarmeðlimir skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Fundir og dagskrárliðir
Uppsetning funda og dagskrárliða er með vel skilgreindu fyrirkomulagi til að tryggja rekjanleika og yfirsýn.
Gagnastjórnun og vanhæfi
Stýring og lokun gagna vegna vanhæfis er möguleiki.
Rekjanleiki og virkni
Umsjónaraðilar hafa yfirsýn yfir virkni, svo sem hvaða dagskrárliðir hafa verið opnaðir og skjöl skoðuð.
Gagnaherbergi
Auðvelt að setja upp gagnaherbergi til að miðla gögnum til ytri aðila.
Rafræn undirritun skjala
Möguleiki á að bæta við rafrænni undirritun skjala.
Hannað til að vinna með tækninni sem teymið þitt notar.